16.7.2007 | 23:12
Húnaþing vestra kemur á óvart
Er nýkomin heim úr velheppnaðri fjölskylduferð um Húnaþing vestra, þar sem við gistum tvær nætur á Sveitasetrinu Gauksmýri og ferðuðumst um Vatnsnesið, Víðidalinn og Vatnsdalinn.
Þarna leynast margar fagrar náttúruperlur sem maður hefur aldrei gefið sér tíma til að heimsækja, á leið norður í land eða á suðurleið, eins og: Hamarsbúð, Hindisvík, Hvítserk, Borgarvirki, Kolugljúfur, Þingeyrarkirkju, Þórdísarlund, Þrístapa og Bjarg í Miðfirði. Stórbrotið útsýni frá Borgarvirki og Bjargi þar sem Grettir fæddist.
Það er líka gaman að koma á Hvammstanga. Þar er góð og velviðhaldin sundlaug, Selasetur Íslands og Bardúsa þar sem er Verslunarminjasafn og handverkssala.
Vatnsleysusystkinin, eitthvað af börnum þeirra og barnabörnum voru alsæl með ferðina. Kynslóðarbil hvað er það? Aldursdreifingin var frá áttatíu og einu ári niður í fimm mánaða.
Athugasemdir
Hæ, rakst á bloggsíðuna þína.
Mamma þín alltaf jafn flott.
Gaman að sjá að allt gekk vel með tvíburana.
Bið kærlega að heilsa mömmu þinni.
Fyrrverandi samstarfsmaður hennar - Sandra
Sandra (IP-tala skráð) 18.7.2007 kl. 09:42
Ég skal skila kveðjunni frá þér - Sandra.
Sigríður Guðnadóttir, 19.7.2007 kl. 10:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.