3.8.2007 | 19:29
Gullni hringurinn
Ég þarf ekki að orðlengja um fegurðina sem blasti alls staðar við okkur. Þarna vorum við innan um, að mestu leyti, erlenda ferðamenn og samglöddumst þeim yfir að fá svona gott veður og tækifæri til að heimsækja landið okkar, en vorkenndum þeim að sama skapi að þurfa að kaupa sér mat á þessum stöðum. Þvílíkt okur t.d. við Geysi, en þar borðuðum við, og ullarvörurnar sem við handlékum við Gullfoss voru hlægilega dýrar. Af hverju þarf að okra svona á ferðafólki?
----
Um daginn var ég með mínum ektamanni á Þingvöllum í bústað. Þvílík forréttindin að eiga bústað á þessum stað. Ég læt fylgja með nokkra myndir sem ég tók úr þeirri ferð, en í gær var ég ekki með myndavélina.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.