Hún er komin heim...fyrir nokkru

Nú eru 11 dagar síðan að prinsessan kom heim. Hún er alsæl með skiptinemadvölina sína á Ítalíu og fjölskyldan var yndisleg við hana.

Fyrir helgi fékk hún tvö bréf annað frá mömmu sinni og hitt frá ömmunni þar sem þær láta í ljós ánægju sína með hana og vilja að hún komi aftur næsta sumar. Og ekki held ég að hún myndi hafa neitt á móti því. Hún saknar þeirrar þó hún sé ánægð með að vera komin heim.

Daginn eftir heimkomuna og borðuðum við saman - vinkonur hennar og foreldrar þeirra og nokkrir fjölskyldumeðlimir í blíðskaparveðri.

 Velkomin heim Guðný

Fleiri myndir undir tenglinum myndaalbúm.

Myndir úr fjölskylduferðinni er undir tenglinum Albúm.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún S Sigurðardóttir

Samgleðst þér ,Sigga mín, að vera búin að fá Guðnýju heim. Og ekki er leiðinlegt  að hitta þig aftur hér á þessum vettvangi. Það væri samt meira gaman að fá að gefa þér kaffisopa!!Og hlæja með!!

Guðrún S Sigurðardóttir, 18.7.2007 kl. 21:17

2 Smámynd: Sigríður Guðnadóttir

Ég kem við fyrsta tækifæri.

Sigríður Guðnadóttir, 19.7.2007 kl. 10:20

3 Smámynd: Sigþrúður Harðardóttir

Til hamingju með að vera búin að endurheimta hana Guðnýju. Hún er enn jafn yndisleg stúlkan sú, ég hitti hana í sundlauginni. Og það sem þeir eru flottir drengirnir sem ég hitti hjá þér um daginn....ja hérna frú Sigríður. Þér eruð rík kona

Sigþrúður Harðardóttir, 19.7.2007 kl. 15:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband